Hæfileikjasmiðjan býður uppá skemmtileg og eflandi tómstundanámskeið fyrir káta krakka!
Við höfum það að leiðarljósi að börn og ungmenni efli jákvæð samskipti við sjálfan sig og aðra í gegnum leiki og skapandi verkefni.
Sumarnámskeið
Á sumarnámskeiðum Hæfileikjasmiðjunar leggjum við áherslu á að virkja sköpunarkraft barna, efla jákvæð samskipti í gegnum hópeflis- og samvinnuleiki og leitum að frumlegum og skemmtilegum leiðum til að njóta samveru og náttúrunnar.
Nánari upplýsingar
Sumarnámskeið
Söngsmiðja
Á söngnámskeiðum förum við í leiki, æfum framkomu og hugrekki, raddbeytingu, tækni, samsöng og sönggleði. Viðfangsefni eru mismunandi eftir aldri og getu og er aldursskipt í hópa.
Nánari upplýsingar
Söngsmiðja
Fjársjóðsleitin
Á námskeiðunum leitast börnin við að finna innri fjarsjóð, sjá og finna sína styrkleika, finna og vinna með neikvæð hegðunarmynstur og efla sjálfstraust í gegnum verkefni og leiki.
Nánari upplýsingar
Fjársjóðsleitin
Tónsmiðjan
Námskeið í tölvutónlist í tónlistarforitinu FL studio. Þar sem við lærum að semja og útsetja tónlist og lærum á helstu aðgerðir tónlistarforitsins ásamt því að kynnast öðrum forritum
Nánari upplýsingar
Tónsmiðjan